Námskrá grunnskóladeildar
Á þessum vef er hýst námskrá um nám, hæfniviðmið, námsmat, lykilhæfni og kennsluhætti í grunnskóladeild Auðarskóla. Einnig er grunnþáttum menntunar gerð nokkur skil. Námskráin er smíðuð beint á vefinn í stað þess að setja hana upp fyrst á pappír og færa svo yfir á vef. Vefformið hentar betur til endurskoðunnar og gefur möguleika á að víkka út eða vísa í annað efni í gegnum hlekki. Þá sparar námskrá á vef mikinn pappír.
Þar sem námskráin er byggð á vefnum tekur hún stöðugt breytingum. Uppfærslur eru dagsettar jafnóðum. Námskráin er unnin af stjórnendum og kennurum skólans. Aðalnámskrá grunnskóla, útgefna af Mennta- og menningar-ráðuneytinu er að finna hér. Sérstök rit um grunnþættina, útgefna af Mennta- og menningarráðuneytinu er að finna hér fyrir neðan: Læsi Sköpun Heilbrigði og velferð Jafnrétti Sjálfbærni Lýðræði og mannréttindi Skólastjóri |
Sýn Auðarskóla
Einkunnarorð Auðarskóla í öllu starfi hans eru:
Ábyrgð – Ánægja – Árangur Auðarskóli vinnur á grunni eftirfarandi gilda og stefnumiða:
|